Rooney fékk skell í kveðjuleiknum

Wayne Rooney í sínum síðasta leik með DC United.
Wayne Rooney í sínum síðasta leik með DC United. AFP

Wayne Rooney lék kveðjuleik sinn með DC United í nótt þegar liðið steinlá fyrir Toronto 5:1 í úrslitakeppni bandarísku MLS-deildarinnar í knattspyrnu.

Staðan var 1:1 að loknum venjulegum leiktíma en í framlengingunni skoraði Toronto fjögur mörk og Rooney og félagar eru þar með úr leik.

Rooney, sem verður 34 ára gamall á fimmtudaginn, heldur nú heim til Englands og klæðir sig í treyju Derby en hann verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá enska B-deildarliðinu.

Rooney skoraði 11 mörk í 28 leikjum með DC United á þessu tímabili en á síðasta tímabili skoraði hann 12 mörk í 20 leikjum með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert