Zlatan baðst afsökunar eftir rauða spjaldið

Zlatan Ibrahimovic gengur vonsvikinn af velli í leiknum við Inter …
Zlatan Ibrahimovic gengur vonsvikinn af velli í leiknum við Inter og Stefano Pioli fylgist með. AFP

Zlatan Ibrahimovic bað liðsfélaga sína í AC Milan afsökunar eftir að hafa verið rekinn af velli í grannaslagnum gegn Inter í ítölsku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöld.

Hinn 39 ára gamli Zlatan kom AC Milan yfir í leiknum en fékk síðan sitt annað gula spjald snemma í seinni hálfleik eftir að hafa brotið á Aleksandar Kolarov. Það fyrra fékk hann fyrir að rífast við Romelu Lukaku í fyrri hálfleiknum.

Stefano Pioli, knattspyrnustjóri AC Milan, sagði að liðsmunurinn hefði gert útslagið um að leikurinn tapaðist en vildi ekki gagnrýna Zlatan í viðtölum eftir leikinn.

„Seinna gula spjaldið fékk hann þegar hann ætlaði að hjálpa liðinu að verjast. Hann hefði getað farið varlegar í návígið en svona lagað gerist. Hann bað okkur alla afsökunar í búningsklefanum eftir leikinn,“ sagði Pioli.

Fyrra gula spjaldið á lofti eftir að Zlatan lenti í …
Fyrra gula spjaldið á lofti eftir að Zlatan lenti í útistöðum við Romelu Lukaku. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert