Dómarinn varði skotið (myndskeið)

Dómarar geta lent í ýmsum uppákomum. Þessi mynd tengist ekki …
Dómarar geta lent í ýmsum uppákomum. Þessi mynd tengist ekki fréttinni. AFP

Dómarar hafa sjaldan bein áhrif á gang mála í leikjum en það gerðist þó í mexíkóska fótboltanum um helgina að dómari leiksins kom í veg fyrir að Cruz Azul skoraði mark í leik gegn Toluca.

Atvikið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði frá The Guardian en eftir að leikmaður Cruz Azul skaut í stöng lenti dómarinn á óheppilegum stað þegar samherji ætlaði að fylgja eftir og senda boltann í netið. Dómarinn varð að fylgja reglum og láta boltann aftur í leik á sama stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert