Aron og Heimir úr leik

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í Al-Arabi eru úr leik …
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í Al-Arabi eru úr leik í furstabikarnum. Ljósmynd/Al Arabi

Al-Arabi er úr leik í katarska furstabikarnum í knattspyrnu eftir 3:0-tap gegn Al-Sadd í undanúrslitum keppninnar í dag.

Hae Hee Nam, Baghdad Bournedjah og Santi Cazorla skoruðu mörk Al-Sadd í leiknum en staðan að loknum fyrri hálfleik var 1:0.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn á miðsvæðinu hjá Al-Arabi en Heimir Hallgrímsson er þjálfari liðsins og Freyr Alexandersson aðstoðarþjálfari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert