Í liði vikunnar í Noregi

Ingibjörg Sigurðardóttir, til vinstri.
Ingibjörg Sigurðardóttir, til vinstri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnukonan Ingibjörg Sigurðardóttir er í liði vikunnar fyrir frammistöðu sína í 2:0-sigri Vålerenga á Arna-Björnar í norsku úrvalsdeildinni á miðvikudaginn var.

Ingibjörg kom Vålerenga yfir á 71. mínútu og stuttu síðar skoraði hin 17 ára gamla Amanda Andradóttir annað mark liðsins og þar við sat.

Íslenski varnarmaðurinn var valin maður leiksins af Vålerenga eftir leik og nú hafa forráðamenn deildarinnar valið hennar í lið vikunnar sem má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert