Tveir Íslendingar í liði umferðarinnar

Mikael Anderson hefur byrjað glæsilega með AGF.
Mikael Anderson hefur byrjað glæsilega með AGF. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Elías Rafn Ólafsson og Mikael Anderson eru báðir í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni að mati TV3 sport í Danmörku.

Elías hélt hreinu og lék afar vel fyrir Midtjylland í 1:0-útisigri á FC Kaupmannahöfn á sunnudag og Mikael skoraði seinna mark AGF í 2:0-útisigri á Silkeborg í gær.

Mikael hefur skorað í báðum leikjum sínum fyrir AGF eftir að hann kom til félagsins frá Midtjylland. Elías hefur fengið tækifæri í marki Mitjylland í fjarveru Jonas Lössl sem er að glíma við meiðsli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert