Frækinn sigur í fyrsta byrjunarliðsleiknum

Alexandra Jóhannsdóttir var í byrjunarliðinu í dag.
Alexandra Jóhannsdóttir var í byrjunarliðinu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knatt­spyrnu­kon­an Al­ex­andra Jó­hanns­dótt­ir spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Frankfurt í þýsku 1. deildinni og hjálpaði liði sínu að vinna magnaðan 3:2-sigur gegn stórliði Bayern München.

Heimakonur í Frankfurt komust í forystu á 68. mínútu með marki Shekieru Martinez en um tíu mínútum síðar var Alexandra tekin af velli. Mínútu eftir það jafnaði Maximiliane Rall metin fyrir Bayern og hún kom svo gestunum yfir á 84. mínútu.

Tvö mörk í blálokin, frá Laura Freigang á 89. mínútu og svofrá Sjoeke Nusken í uppbótartíma tryggði hins vegar heimakonum frækinn sigur. Glódís Perla Viggósdóttir var einnig í byrjunarliðinu hjá Bayern og spilaði allan leikinn.

Nú eru þrjú lið með jafnmörg stig á toppi deildarinnar. Bayern, Leverkusen og Frankfurt eru öll með 15 stig eftir sex umferðir en næst kemur Wolfsburg með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert