Malmö staðfestir ráðningu Milosar

Milos Milojevic er nýr þjálfari Malmö.
Milos Milojevic er nýr þjálfari Malmö. Ljósmynd/Malmö

Knattspyrnuþjálfarinn Milos Milojevic hefur ráðinn þjálfari sænska meistaraliðsins Malmö. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni núna rétt í þessu.

Milos tekur við liðinu af Jon Dahl Tomasson, fyrrverandi landsliðsmanni Dana, sem lét af störfum eftir tímabilið eftir tvö ár hjá félaginu en liðið varð sænskur meistari tvö tímabil í röð undir stjórn Tomasson.

Mi­los, sem er 39 ára gam­all Ser­bi, var bú­sett­ur á Íslandi í tólf ár og þjálfaði bæði Vík­ing í Reykja­vík og Breiðablik á ár­un­um 2015 til 2017 en hef­ur starfað síðan í Svíþjóð og Serbíu.

Hann tók við Hamm­ar­by í sænsku úr­vals­deild­inni síðasta sum­ar en var sagt upp störf­um í des­em­ber eft­ir að hafa farið í viðræður um að taka við þjálf­un norska liðsins Rosen­borg.

Malmö er sigursælasta lið Svíþjóðar en liðið hefur í 22. skipti orðið Svíþjóðarmeistari og þá hefur félagið fjórtán sinnum orðið bikarmeistari.

Fréttin hefur verður uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert