Miðbaugs-Gínea óvænt í fjórðungsúrslit

Jesús Owono fagnar eftir að hann tryggði Miðbaugs-Gíneu sæti í …
Jesús Owono fagnar eftir að hann tryggði Miðbaugs-Gíneu sæti í fjórðungsúrslitum Afríkumótsins í knattspyrnu. AFP

Miðbaugs-Gínea vann afar óvæntan sigur á Malí þegar liðin mættust í 16-liða úrslitum Afríkumótsins í knattspyrnu í Kamerún í gærkvöldi.

Til þess þurfti liðið vítaspyrnukeppni en markalaust var að loknum venjulegum leiktíma og einnig að lokinni framlengingu.

Jesús Owono, tvítugur markvörður Miðbaugs-Gíneu, var hetjan þegar hann varði tvö víti í 6:5 sigri liðsins eftir bráðabana í vítaspyrnukeppninni.

Malí var sterkari aðilinn í leiknum og klúðraði nokkrum dauðafærum en Miðbaugs-Gínea var fast fyrir og hélt leikmönnum Malí vel í skefjum ef undan eru skilin áðurnefnd dauðafæri.

Malí var talið mun sigurstranglegra fyrir leik enda 61 sæti ofar á heimslista FIFA.

Miðbaugs-Gínea er hins vegar komið áfram og mætir Senegal í fjórðungsúrslitunum næstkomandi sunnudag.

Fjórðungsúrslitin í heild sinni:

Gambía - Kamerún 29. janúar

Búrkína Fasó - Túnis 29. janúar

Egyptaland - Marokkó 30. janúar

Senegal - Miðbaugs-Gínea

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert