Iveta og Ólafur best hjá Fylki

Iveta Ivanova og Ólafur Engilbert Árnason með verðlaunin.
Iveta Ivanova og Ólafur Engilbert Árnason með verðlaunin.

Karatefólkið Iveta Ivanova og Ólafur Engilbert Árnason var í dag útnefnt íþróttafólk Fylkis í áramótakaffi félagsins í Fylkishöll.

Iveta var m.a. Íslandsmeistari, sigraði á Smáþjóðaleikunum og á Reykjavíkurleikunum og er í 54. sæti heimslistans í sínum flokki. Hún var útnefnd karatekona ársins 2017 af Karatesambandi Íslands.

Ólafur sigraði m.a. á Reykjavíkurleikunum og opna Álaborgarmótinu, og fékk silfur á Smáþjóðaleikunum og Norðurlandamótinu. Hann er í 35. sæti heimslistans í sínum flokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert