Örn fimmti í Portúgal

Örn Davíðsson hafnaði í fimmta sæti í spjótkasti á Evrópumótinu í kastgreinum í Leiria í Portúgal í dag. Örn kastaði lengst 67,42 metra, sem er nokkuð frá hans besta árangri.

Mykola Kalyush frá Úkraínu bar sig úr býtum með því að kasta 74,18 metra og Joe Harris frá Bretlandi varð annar með kast upp á 74,11 metra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert