Fyrsti úrslitaleikurinn í kvöld

Sarah Smiley úr SA sækir að Fanneyju Stefánsdóttur markverði Reykjavíkur …
Sarah Smiley úr SA sækir að Fanneyju Stefánsdóttur markverði Reykjavíkur í viðureign liðanna fyrr í vetur. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Úrslitaeinvígi Skautafélags Akureyrar og liðs Reykjavíkur um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkíi hefst í kvöld.

Akureyringar urðu deildarmeistarar, fengu 25 stig gegn 5 stigum Reykvíkinga í leikjum liðanna í vetur, og eiga því fyrsta leikinn á heimavelli en hann hefst klukkan 19.30.

Liðin mætast aftur í Egilshöllinni á fimmtudagskvöldið og ef til oddaleiks kemur fer hann fram á Akureyri á sunnudaginn. SA hefur orðið meistari 13 ár í röð og í 18 ár af þeim 19 sem keppt hefur verið um titilinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert