Metþátttaka Íslendinga á Evrópumótinu

Evrópumeistaramótið 2022 fer fram í Slóveníu á næsta ári.
Evrópumeistaramótið 2022 fer fram í Slóveníu á næsta ári. Ljósmynd/Archery.is

Alls er 21 Íslendingur á leið á Evrópumeistaramótið innandyra í bogfimi en mótið fer fram í Lasko í Slóveníu dagana 13.-20. febrúar á næsta ári. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Bogfimisambandið sendi frá sér.

Á Evrópumeistaramótinu er keppt í bæði opnum flokki og flokki U21-árs og yngri en þetta er stærsti keppendahópur sem Bogfimisambandið hefur sent á stórmót.

„Gert er ráð fyrir ágætu gengi Íslands á þessu móti, sérstaklega í liðakeppni, þar sem gert er ráð fyrir því að mörg lið muni komast í úrslit eða fjórðungsúrslit mótsins miðað við tölfræði fyrri móta,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu Bogfimisambandsins.

Keppendur Íslands í Slóveníu:

Sveigbogi karla einstaklingar og lið

  • Haraldur Gústafsson – Skotfélag Austurlands (Skaust) – Egilstöðum
  • Dagur Örn Fannarsson – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi
  • Oliver Ormar Ingvarsson – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi

Sveigbogi kvenna

  • Guðný Gréta Eyþórsdóttir – Skotfélag Austurlands (Skaust) – Egilstöðum
  • Astrid Daxböck – Bogfimifélagið Boginn – Kópavogur

Sveigbogi U21 kvenna

  • Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi
  • Marín Aníta Hilmarsdóttir – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi

Trissubogi karla einstaklingar og lið

  • Alfreð Birgisson – Íþróttafélaginu Akur – Akureyri
  • Gummi Guðjónsson – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi
  • Albert Ólafsson – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi

Trissubogi U21 karla einstaklingar og lið

  • Nóam Óli Stefánsson – Bogfimifélaginu Hróa Hetti – Hafnarfirði
  • Nói Barkarson – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi
  • Daníel H. Baldursson – Skotfélag Austurlands (Skaust) – Egilstöðum

Trissubogi kvenna einstaklingar og lið

  • Ewa Ploszaj – Bogfimifélagið Boginn – Kópavogi
  • Astrid Daxböck – Bogfimifélagið Boginn – Kópavogi
  • Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir – Bogfimifélagið Boginn – Kópavogi

Trissubogi U21 kvenna einstaklingar og lið

  • Anna María Alfreðsdóttir – Íþróttafélaginu Akur – Akureyri
  • Sara Sigurðardóttir – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi
  • Freyja Dís Benediktsdóttir – Bogfimifélaginu Boganum – Kópavogi

Berbogi kvenna

  • Guðbjörg Reynisdóttir – Bogfimifélaginu Hróa Hetti – Hafnarfirði
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert