Drífa og Elsa heimsmeistarar

Heimsmeistararnir. Mynd úr safni.
Heimsmeistararnir. Mynd úr safni.

Drífa Harðardóttir og Elsa Nielsen urðu í dag heimsmeistarar í tvíliðaleik í badm­int­on í ald­urs­flokkn­um 40 ára og eldri. Áður hafði Drífa einnig orðið heimsmeistari í tvenndarleik.

Drífa og Elsa mættu pari frá S-Kóreu í úrslitum í tvíliðaleiknum og höfðu þær betur í tveimur hrinum; 23\21 og 21/​8.

Alls taka um 2.300 keppendur þátt í mótinu sem fer fram í Huelva á Spáni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert