Landsliðskona í Mosfellsbæ

Leikmenn Aftureldingar fagna sæti í efstu deild síðasta haust.
Leikmenn Aftureldingar fagna sæti í efstu deild síðasta haust. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnukonan Chyanne Dennis er gengin til liðs við Aftureldingu og mun leika með liðinu í efstu deild kvenna í sumar. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Chyanne, sem er 22 ára gömul, skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið en hún á að baki fjóra A-landsleiki fyrir Jamaíka.

Varnarmaðurinn kemur til félagsins frá háskólaliði South Florida Bulls þar sem hún var í lykilhlutverki.

Við erum ótrúlega spennt fyrir komu Chyanne en von er á henni til Íslands að loknu landsliðsverkefni með Jamaíka í febrúar,“ segir í tilkynningu Aftureldingar.

„Við erum fullviss að hæð, styrkur og hæfileikar Chyanne muni hjálpa liðinu í baráttunni sem framundan er í efstu deild kvenna,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert