Haraldur og Aron byrja vel

Haraldur Franklín Magnús
Haraldur Franklín Magnús mbl/Arnþór Birkisson

Fimm Íslendingar hófu í gær keppni á Winter Series Lumine Hills golfmótinu sem er hluti af Nordic Golf mótaröðinni. Mótið fer fram á Spáni og er keppt á tveimur völlum.

Aron Bergsson og Haraldur Franklín Magnús léku best af Íslendingunum en þeir luku fyrsta hringnum á 66 höggum eða á þremur höggum undir pari. Þeir eru jafnir í 5.-14. sæti.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék á pari, Andri Þór Björnsson á þremur yfir pari og Íslandsmeistarinn Axel Bóasson endaði hringinn á sex höggum yfir pari.

Staðan á mótinu

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert