Valdís um miðjan hóp - Fínn lokahringur hjá Guðrúnu

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. AFP

Valdís Þóra Jónsdóttir lék þriðja hringinn á Estrella Damm-mótinu í golfi í gær á 73 höggum eða á tveimur höggum yfir pari vallarins.

Valdís fékk þrjá fugla og fimm skolla og er jöfn í 36. sæti á sex höggum yfir pari fyrir lokahringinn sem spilaður verður í dag en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

Staðan á mótinu

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Berglind Björnsdóttir luku keppni í gær á  Rügenwalder Mühle- mótinu sem er á á LET Access-mótaröðinni. Guðrún Brá lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari en hún fékk fimm fugla á hringnum og tvo skolla. Guðrún endaði í 29. sæti.

Berglind lék þriðja og síðasta hringinn á fimm höggum yfir pari og lauk keppni í 45. sæti.

Lokastaðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert