Lék betur í dag en í gær

Guðmundur Ágúst Kristjánsson hefur lokið leik í Danmörku.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson hefur lokið leik í Danmörku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafnaði í 61. sæti á Sydbank Esbjerg-mótinu á Áskorendamótaröð Evrópu í golfi.

Hann lék fjórða og síðasta hringinn í dag á 73 höggum, tveimur höggum yfir pari og lýkur leik á samanlagt sjö höggum yfir pari.

Guðmundur lék hringina fjóra á 74, 69, 75, og 73 höggum. Hann var eini Íslendingurinn sem fór í gegnum niðurskurðinn en þeir Bjarki Pétursson, Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús féllu úr leik eftir tvo hringi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert