Á þremur yfir í Ástralíu

Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á þremur höggum yfir pari í …
Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á þremur höggum yfir pari í nótt. Ljósmynd/LET

Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir hóf leik á Women‘s nsw open-mótinu á Evrópumótaröðinni í Ástralíu í nótt.  

Guðrún átti ekki sinn besta dag og lék á 75 höggum, þremur höggum yfir pari. Hún fékk fjóra skolla og einn fugl á holunum átján.

Hún er í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Ráshópur Guðrúnar á öðrum hring fer af stað um 21 í kvöld en þá er kominn föstudagsmorgunn í Ástralíu.

Amandeep Drall frá Indlandi og Maja Stark frá Svíþjóð eru efstar á fjórum höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert