Perla Sól flýgur upp heimslistann

Perla Sól Sigurbrandsdóttir.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, áhugakylfingur úr GR, náði frábærum árangri á áhugamannamóti á Englandi um helgina og tók þar með risastökk upp heimslista áhugakylfinga.

Vakin er athygli á þessu á Kylfingi.is.

Perla Sól hafnaði í 6. sæti á R&A U16 ára móti áhugakylfinga eftir að hafa verið í topp tíu allt mótið.

Þar með tók hún allsvakalegt stökk upp heimslistann. Fór hún upp um ein 864 sæti, úr 1.633. sæti upp í 769. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert