Jóhann Kaldal til FH

Jóhann Kaldal handsalar samninginn við FH.
Jóhann Kaldal handsalar samninginn við FH. Ljósmynd/FH

Handknattleiksmaðurinn Jóhann Kaldal Jóhannsson gekk í dag til liðs við FH. Hann kemur til Hafnarfjarðarliðsins frá Gróttu en hann er örvhentur hornamaður sem hefur spilað með yngri landsliðunum.

„Við erum virkilega ánægðir FH-ingar með að Jói hafi ákveðið að koma til okkar. Jói er mjög efnilegur leikmaður, drengur góður og smellpassar inn í okkar hóp,” segir Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Við ætlum okkur áfram að vera í fremstu röð næstu árin og Jói er eitt púslið af mörgum til að ná þeirri mynd sem við erum að vinna í að mynda,“ segir Ásgeir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert