Þorsteinn Gauti Hjálmarsson er genginn í raðir Aftureldingar en hann kemur frá Fram og var drjúgur í markaskorun fyrir Framara í Olís-deildinni í handknattleik í vetur.
Staðarblaðið Mosfellingur greinir frá þessu og kemur fram að Þorsteinn geri tveggja ára samning við Aftureldingu.
Þorsteinn Gauti er 24 ára gamall og uppalinn hjá Þrótti.