Arnór og Ragnar skoruðu níu mörk

Arnór Þór Gunnarsson.
Arnór Þór Gunnarsson. AFP

Arnór Þór Gunnarsson og Ragnar Jóhannsson skoruðu níu mörk sín á milli fyrir Bergischer sem gerði 25:25-jafntefli gegn Göppingen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Arnór skoraði sex mörk og var markahæstur í liði sínu og Ragnar skoraði þrjú mörk. Það virtist ætla að duga til sigurs þar sem Bergischer var þremur mörkum yfir á lokamínútunum, 25:22, en gestirnir skoruðu þrjú síðustu mörkin og kreistu fram jafntefli.

Bergischer er búið að vinna þrjá af fyrstu tíu deildarleikjum sínum og situr í 12. sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert