Sannfærandi Haukar gegn HK

Haukar eru á fínni siglingu.
Haukar eru á fínni siglingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar unnu sannfærandi 29:23-sigur á HK í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. Haukar komust í 8:2 snemma leiks og voru HK-ingar, sem unnu Íslandsmeistara Vals í síðustu umferð, ekki líklegir til að jafna eftir það. 

Hin sænska Sara Odden átti stórleik fyrir Hauka og skoraði tíu mörk og Berta Rut Harðardóttir skoraði sex. Saga Sif Gísladóttir átti góðan leik í markinu. 

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sex mörk fyrir HK og Díana Kristín Sigmarsdóttir gerði fimm mörk. 

HK er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig og Haukar í sjötta sæti með sjö stig. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hafa Haukar aðeins tapað einum leik af síðustu fimm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert