Mosfellingar fyrstir í átta liða úrslitin

Daníel Örn Griffin brýst í gegnum vörn Aftureldingar í Mosfellsbænum …
Daníel Örn Griffin brýst í gegnum vörn Aftureldingar í Mosfellsbænum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Afturelding var fyrst liða til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppni karla í handknattleik þegar liðið hafði betur gegn KA 29:26 að Varmá í kvöld.

Mosfellingar höfðu undirtökin allan tímann. Afturelding var fjórum mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn og það hélt fengnum hlut í seinni hálfleik.

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson var markahæstur í liði Aftureldingar með 8 mörk, Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 5 og Birkir Benediktsson 4. Hjá KA-mönnum var Daníel Örn Griffin markahæstur með 6 mörk og þeir Andri Snær Stefánsson, Dagur Gautason og Petrekur Stefánsson skoruðu 4 mörk hver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert