Tólf íslensk mörk í dramatísku jafntefli

Gunnar Steinn Jónsson skoraði sjö mörk.
Gunnar Steinn Jónsson skoraði sjö mörk. AFP

Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg var hársbreidd frá sterkum útisigri á Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Holstebro skoraði jöfnunarmark á síðustu sekúndunni og urðu lokatölur 27:27. 

Gunnar Steinn Jónsson lék afar vel með Ribe-Esbjerg og skoraði sjö mörk og Rúnar Kárason gerði fimm. Daníel Þór Ingason komst ekki á blað en átti eina stoðsendingu. 

Ribe-Esbjerg er í fjórða sæti deildarinnar með 18 stig eftir 15. umferðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert