Landsliðsmarkvörður samdi við nýliðana

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, fyrir miðju, verður áfram í Danmörku á …
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, fyrir miðju, verður áfram í Danmörku á næstu leiktíð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, landsliðsmarkvörður Íslands í handknattleik, hefur skrifað undir samning við danska úrvalsdeildarfélagið Ringkøbing.

Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni en um helgina var staðfest að markvörðurinn myndi yfirgefa Vendsyssel eftir þrjú ár í herbúðum félagsins.

Vendsyssel féll úr dönsku úrvalsdeildinni á dögunum en Rinkøbing verður nýliði í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert