Óvíst með þátttöku lykilmanna Hauka

Stefán Rafn Sigurmannsson er búinn að vera að glíma við …
Stefán Rafn Sigurmannsson er búinn að vera að glíma við meiðsli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hafnfirðingarnir Brynjólfur Snær Brynjólfsson og Stefán Rafn Sigurmannsson gætu misst af síðari leik Hauka og Vals í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handknattleik sem fram fer á Ásvöllum í kvöld. Það er Vísir sem greinir frá þessu. 

Valsmenn leiða með þremur mörkum í einvíginu, 32:29, en samanlögð úrslit tveggja leikja skera úr um það hvort liðið verður Íslandsmeistari í kvöld.

Stefán Rafn lék ekki með Haukum í fyrri leiknum og þá kom Brynjólfur Snær lítið við sögu á Hlíðarenda.

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var spurður út í hvort leikmennirnir yrðu með í kvöld en gat ekki staðfest það í samtali við Vísi. „Það kemur bara í ljós í upphitun,“ sagði Aron.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert