Mögnuð framganga færeyska liðsins

Færeyska liðið H71 er að slá í gegn í Evrópubikarnum.
Færeyska liðið H71 er að slá í gegn í Evrópubikarnum. Ljósmynd/H71

Færeyska handboltaliðið H71 gerði sér lítið fyrir og vann 39:38-útisigur á ZRK Naisa frá Serbíu í 16-liða úrslitum Evrópubikar kvenna í dag.

H71 frá Hoyvík er fyrsta færeyska liðið sem fer í 16-liða úrslit í Evrópukeppni og á nú fína möguleika á að fara áfram í átta liða úrslit en seinni leikur liðanna fer fram í Þórshöfn næstkomandi laugardag.

Landsliðskonan Maria Halsdottir Weyhe fór á kostum í dag og skoraði 15 mörk. Það er þó ekki persónulegt met því hún skoraði 17 mörk gegn Spono Nottwil frá Sviss í síðustu umferð. Maria er aðeins 21 árs.

Færeyska liðið fór illa með Cair-Skopje frá Norður-Makedóníu í 1. umferð keppninnar og vann samanlagðan sigur 78:53. Næst tók liðið á móti Spono Nottwil frá Sviss og hafði betur samanlagt 65:57.

ÍBV er komið í átta liða úrslit keppninnar eftir tvo sigra á Sokol Písek frá Tékklandi í Vestmannaeyjum um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert