Ráðinn þjálfari Gróttu

Sigurjón Friðbjörn Björnsson ásamt Arnkeli Bergmann Arnkelssyni, formanni handknattleiksdeildar Gróttu.
Sigurjón Friðbjörn Björnsson ásamt Arnkeli Bergmann Arnkelssyni, formanni handknattleiksdeildar Gróttu. Ljósmynd/Grótta

Sigurjón Friðbjörn Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Gróttu í handbolta. Tekur hann við liðinu af Gunnari Gunnarssyni sem hætti með liðið á dögunum.

Þjálfarinn er 34 ára gamall og kemur til Gróttu frá HK, þar sem hann var aðstoðarþjálfari kvennaliðs HK.

Þar á undan var hann aðstoðarþjálfari Stjörnunnar og aðalþjálfari kvennaliða Fjölnis og ÍR. Er hann þjálfari U17 ára landsliðs kvenna.

Grótta er í þriðja sæti 1. deildarinnar, Grill 66 deildarinnar, með 16 stig, einu stigi á eftir Aftureldingu og ÍR sem eru í tveimur efstu sætunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert