Tveir nýliðar í landsliðshópnum

Rut Arnfjörð Jónsdóttir er einn reynslumesti leikmaður Íslands og er …
Rut Arnfjörð Jónsdóttir er einn reynslumesti leikmaður Íslands og er á sínum stað í hópnum. mbl.is/Óttar Geirsson

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 20 leikmenn til æfinga fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Noregi-B sem fara fram í byrjun mars en leikið verður á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Hópurinn kemur saman til æfinga þann 27. febrúar næstkomandi. 

Fyrri leikur liðanna fer fram fimmtudaginn 2. mars klukkan 19.30 og sá síðari laugardaginn 4. mars klukkan 16.

Leikirnir við Noreg eru liður í undirbúningi liðsins fyrir umspilsleiki við Ungverja um sæti á HM sem haldið verður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í desember 2023. Þeir leikir verða leiknir í apríl, sá fyrri hér heima 8. apríl og sá síðari 12. apríl í Ungverjalandi.

Í hópnum eru tveir leikmenn sem hafa ekki leikið A-landsleik.

Það eru Margrét Einarsdóttir, markvörður Hauka, sem þó hefur verið valin áður í landsliðshópinn, og Katla María Magnúsdóttir, skytta Selfoss, sem er markahæst í Olísdeildinni með 118 mörk í 16 leikjum.

Hópurinn er skipaður eftirfarandi leikmönnum:

Markverðir:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringkøbing Håndbold (39/1)

Hafdís Renötudóttir, Fram (40/2)

Margrét Einarsdóttir, Haukar (0/0)

Aðrir leikmenn:

Andrea Jacobsen, EH Aalborg (35/49)

Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (4/3)

Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (90/101)

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara HF (4/7)

Katla María Magnúsdóttir, Selfoss (0/0)

Katrín Tinna Jensdóttir, Volda (7/2)

Lena Margrét Valdimarsdóttir, Stjarnan (4/3)

Lilja Ágústsdóttir, Valur (4/1)

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV (37/69)

Perla Ruth Albertsdóttir, Fram (28/41)

Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (112/241)

Sandra Erlingsdóttir, Metzingen (16/65)

Steinunn Björnsdóttir, Fram (42/46)

Sunna Jónsdóttir, ÍBV (71/55)

Thea Imani Sturludóttir, Valur (58/95)

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (28/14)

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (117/341)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert