Úrslitin ráðast í oddaleik eftir mikla spennu

Elvar Már Friðriksson er kominn í oddaleik.
Elvar Már Friðriksson er kominn í oddaleik. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rytas knúði fram oddaleik í úrslitaeinvígi litháíska körfuboltans með 69:68-heimasigri á Zalgiris Kaunas í fjórða leik liðanna í kvöld. Er staðan í einvíginu 2:2.

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hafði heldur rólegt um sig og gaf þrjár stoðsendingar og tók eitt frákast á rúmum 15 mínútum með Rytas.

Oddaleikurinn fer fram á laugardaginn kemur á heimavelli Zalgiris Kaunas.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert