Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson verður ekki með í fyrsta leik FH gegn Aftureldinu í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.
Aron er að glíma við meiðsli á fingri og var ekki með gegn ÍBV í undanúrslitum né með íslenska landsliðinu gegn Eistlandi á dögunum.
Samkvæmt heimildum mbl.is er hann ekki búinn að jafna sig og getur því ekki tekið þátt i leiknum í kvöld.
Leikurinn fer fram í Kaplakrika í kvöld og hefst klukkan 19.40.