Ari Gunnarsson áfram í Borgarnesi

Ari Gunnarsson
Ari Gunnarsson mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Körfuboltaþjálfarinn Ari Gunnarsson þjálfar áfram kvennalið Skallagríms á næsta tímabili. Félagið greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni.

Ari tók við Skallagrími í janúar síðastliðinn í kjölfar þess að liðið féll úr leik úr Maltbikarnum eftir tap fyrir Njarðvík. Undir stjórn Ara spilaði liðið mun betur og komst í úrslitakeppnina eftir góðan endasprett. 

Skallagrímur tapaði að lokum fyrir Haukum í undanúrslitum. „Eins og Skallagrímsmenn þekkja vel þá Ari flestum hnútum kunnugur í Borgarnesi en hann lék um tíu ára skeið með meistaraflokki Skallagríms í efstu deild," segir í yfirlýsingu sem Skallagrímur sendi frá sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert