Þór Þ. valtaði yfir Hauka á útivelli

Halldór Garðar Hermannsson var sterkur hjá Þór Þ..
Halldór Garðar Hermannsson var sterkur hjá Þór Þ.. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þór Þ. átti ekki í neinum vandræðum með að vinna Hauka á útivelli er liðin mættust í 10. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 106:73 og 33 stiga sigur Þórs staðreynd. 

Þórsarar unnu fyrsta leikhlutann 37:23 og héldu þeir áfram að bæta í forskotið hægt og örugglega út leikinn. Haukar tóku aðeins við sér í þriðja leikhluta, en Þór vann fjórða leikhlutann stórt og leikinn sannfærandi í leiðinni. 

Halldór Garðar Hermannsson skoraði 25 stig fyrir Þór og Nikolas Tomsick gerði 21 stig. Haukur Óskarsson og Kristinn Marinósson skoruðu 16 stig hvor fyrir Hauka. 

Með sigrinum fóru Þórsarar upp í átta stig og upp að hlið Hauka. Liðin eru í 6.-9. sæti ásamt ÍR og Grindavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert