„Eini sem ég hef haldið upp á af lífi og sál“

Kobe Bryant var einn besti körfuboltamaður veraldar.
Kobe Bryant var einn besti körfuboltamaður veraldar. AFP

Eins og komið hefur fram á mbl.is lést Kobe Bryant, einn besti körfuboltamaður allra tíma, í þyrluslysi í dag. Bryant var aðeins 41 árs. Gigi, 13 ára dóttir hans, lést einnig í slysinu, en alls fórust fimm manns. 

Bryant var gríðarlega áhrifamikill bæði innan og utan vallar, eins og kveðjur á samfélagsmiðlum gefa til kynna, en margar af helstu íþróttastjörnum veraldar votta honum virðingu sína á Twitter í dag. 

Bryant var dýrkaður og dáður af fólki um allan heim, bæði íþróttaáhugamönnum og öðrum. Hér fyrir neðan má sjá brot af þeim kveðjum sem finna má á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert