Tveir geta ekki spilað gegn Kósóvó

Ólafur Ólafsson kemur inn í lið Íslands.
Ólafur Ólafsson kemur inn í lið Íslands. mbl.is / Hari

Ægir Þór Steinarsson úr Stjörnunni og Pavel Ermolinskij úr Val verða ekki með íslenska karlalandsliðinu í körfuknattleik á fimmtudaginn þegar það mætir Kósóvó á útivelli í fyrsta leiknum í forkeppni heimsmeistaramótsins.

Þeir hafa báðir dregið sig út úr hópnum af persónulegum ástæðum en mögulegt er að þeir verði með á sunnudagskvöldið næsta þegar Ísland fær Slóvakíu í heimsókn í keppninni.

Craig Pedersen landsliðsþjálfari hefur í staðinn valið þá Ragnar Nathanaelsson úr Val og Ólaf Ólafsson úr Grindavík í hópinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert