Landsliðskonan stigahæst gegn toppliðinu

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í sínu liði.
Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í sínu liði. Ljósmynd/Óttar Geirsson

Phoenix Constanta fékk 59:87-skell á heimavelli gegn Satu Mare í efstu deild Rúmeníu í körfubolta í dag.

Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik fyrir Constanta, þrátt fyrir stórt tap, og skoraði 17 stig, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar á rúmum 28 mínútum spiluðum. Var hún stigahæst í sínu liði.

Sara og stöllur eru í sjötta sæti deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki. Satu Mare er í toppsætinu með 15 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert