Hársbreidd frá tvennunni

Sara Rún Hinriksdóttir átt fínan leik.
Sara Rún Hinriksdóttir átt fínan leik. Ljósmynd/Óttar Geirsson

Arad hafði betur gegn Phoenix Constanta á heimavelli í efstu deild rúmenska körfuboltans í dag, 68:67.

Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir var sterk í liði gestanna og skoraði 12 stig, tók 9 fráköst og gaf eina stoðsendingu á rúmum 35 mínútum, hún var því aðeins einu frákasti frá tvöfaldri tvennu.

Sara og samherjar hennar eru í áttunda sæti deildarinnar með ellefu stig eftir átta leiki en liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð eftir þrjá sigra í röð þar á undan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert