Jokic reyndist New York erfiður

Nikola Jokic átti stórleik.
Nikola Jokic átti stórleik. AFP

Serbinn Nikola Jokic átti enn og aftur stórleik er hann og liðsfélagar hans í Denver Nuggets fögnuðu 113:99-útisigri á New York Knicks í NBA-körfuboltanum vestanhafs í kvöld.

Denver var með undirtökin allan leikinn og var sigurinn öruggur. Jokic skoraði 32 stig, tók 11 fráköst og gaf auk þess fimm stoðsendingar. Zeke Nnaji bætti við 21 stigi. Julius Randle skoraði 24 stig fyrir New York.

Denver er í tíunda sæti Vesturdeildarinnar með 10 sigra og 11 töp á meðan New York er með 11 sigra og 11 töp í 11. sæti Austurdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert