Áhorfendur leyfðir en mega ekki hrópa

Íbúar Tókýó ganga um götur borgarinnar. Fólk búsett í Japan …
Íbúar Tókýó ganga um götur borgarinnar. Fólk búsett í Japan má mæta á viðburði Ólympíuleikanna þar í borg. AFP

Allt að 10.000 innlendir áhorfendur verða leyfðir á áhorfendapöllum á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan, sem hefjast eftir rúman mánuð. Þeir þurfa þó að fylgja ströngum reglum.

Grímuskyldan er á sínum stað þar sem áhorfendur þurfa að vera með hana á andlitinu öllum stundum á meðan þeir eru staddir á leikvöngum.

Meiri athygli vekur þó að stuðningsmenn mega ekki hrópa eða tala hátt, þótt klapp sé enn þá leyft.

Fyrr á árinu tók japanska ólympíunefndin þá ákvörðun að áhorfendur búsettir annars staðar en í Japan yrðu ekki leyfðir á leikunum vegna kórónuveirufaraldursins.

10.000 verður hámark áhorfenda, að því gefnu að sá fjöldi fari ekki yfir 50 prósent þess fjölda sæta sem leikvangur getur tekið við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert