Ríflega tíu milljóna evra greiðsla, jafnvirði 1,7 milljarða króna, ALMC til kröfuhafa félagsins var stöðvuð af Seðlabanka Íslands þann 20. nóvember síðastliðinn.
Taldi Seðlabankinn að greiðslan væri ekki í samræmi við lög og reglur um gjaldeyrismál, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.
ALMC, móðurfélag Straums fjárfestingarbanka, hefur tilkynnt eigendum skuldabréfsins um greiðslufall á bréfinu og að félagið eigi nú í viðræðum við æðstu stjórnendur Seðlabankans. Þetta sýna gögn sem Morgunblaðið hefur undir höndum.