Byko kærir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

Byko telur með ólíkindum að stjórnvald líkt og Samkeppniseftirlitið taki ákvörðun sem er í beinni andstöðu við niðurstöðu dómstóla. Getur slík ákvörðun vart verið lögmæt, segir í tilkynningu frá Byko og hefur fyrirtækið ákveðið að kæra ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Líkt og fram kom á mbl.is fyrr í morgun var Byko dæmt til að greiða 650 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum.

Í yfirlýsingu frá Byko kemur fram að bæði úrskurðurinn og áróðurinn veki undrun Byko.

„Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er í beinni andstöðu við nýfallinn dóm fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjaness, þar sem 11 af 12 sakborningum í sama máli voru sýknaðir. Dómurinn taldi gögn málsins sýna það með óyggjandi hætti að verðsamkeppni á byggingavörumarkaðnum væri mikil. Orðrétt segir í niðurstöðum dómsins: „Benda öll þessi skilaboð til þess að hið gagnstæða hafi verið, mikil og hörð samkeppni, en ekki verðsamráð“.Vandséð er hvernig hægt er að komast að svo ólíkri niðurstöðu í tveimur málum sem fjalla um sömu málsatvik, þ.e. annars vegar í niðurstöðu fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjaness og hins vegar í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins frá í dag.

Málatilbúnaður Samkeppniseftirlitsins byggist öðrum þræði á því að reglulegar verðkannanir í gegnum síma feli í sér ólögmætt samráð. Er þetta í andstöðu við dóm Héraðsdóms Reykjaness þar sem segir orðrétt: „Eru verðkannanir, hvort sem þær eru gerðar af opinberum aðilum, einkaaðilum, viðskiptavinum, eða innan fyrirtækjanna sjálfra, ekki saknæm háttsemi.“ Niðurstaða héraðsdóms var afdráttarlaus. Verðkönnunarsímtölin sem áttu sér stað voru eðlileg og í samræmi við lög,“ segir í yfirlýsingu frá Byko.

Byko gert að greiða 650 milljónir

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK