Nýr samningur Flugfreyjufélagsins og WOW undirritaður

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Flugfreyjufélag Íslands og WOW air undirrituðu kjarasamning í nótt sem gildir til 29. febrúar 2020 verði hann samþykktur af félagsmönnum.

Þetta staðfestir Orri Þrastarson varaformaður Flugfreyjufélags Íslands í samtali við mbl.is en hann segir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar verði orðin ljós 28. febrúar.

Flugfreyjur hjá flugfélaginu WOW air hafa nú þegar fellt tvo kjarasamninga. Orri segir að ekki sé hægt að gefa of mikið upp um samninginn áður en hann verður borinn undir félagsmenn en helsti munurinn á þessum samningi og hinum tveimur sé sá að kjör yfirmanna um borð í flugvélum batni umtalsvert.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK