Kröfu um kyrrsetningu á eignum Valitor hafnað

Höfuðstöðvar Valitor við Dalshraun í Hafnarfirði.
Höfuðstöðvar Valitor við Dalshraun í Hafnarfirði.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kyrrsetningarkröfu Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) á eignum Valitor. Í fréttatilkynningu frá Valitor segir að ákvörðunin komi ekki á óvart enda telji Valitor að kyrrsetningarkrafan hafi ekki átt við nein rök að styðjast, auk þess sem  Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafði áður hafnað sömu kröfu. 

„Valitor vill jafnframt nota tækifærið til að vísa á bug söguburði í fjölmiðlum þess efnis að lögmaður Datacell og SPP hafi átt í einhvers konar samningaviðræðum við Valitor um uppgjör á kröfum þessara fyrirtækja á hendur félaginu. Engar slíkar viðræður hafa átt sér stað,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að langstærstur hluti krafna framangreindra félaga á hendur Valitor, eða um 95%, sé krafa SPP sem er að langmestu leyti í eigu Julian Assange. Það félag hefur aldrei átt í neinu viðskiptasambandi við Valitor. Auk þess hefur félagið aldrei haft nema hverfandi tekjur en gerir samt milljarða kröfur á hendur fyrirtækinu. Valitor hefur frá upphafi talið að enginn grundvöllur sé fyrir kröfugerð SPP og hefur því ítrekað hafnað henni. Auk þess er vert að minna á að enginn dómur hefur fallið um kröfugerð SPP.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK