Arion tapar háum fjárhæðum

Arion banki hefur sent frá sér afkomuviðvörun vegna neikvæðra áhrifa á afkomu þriðja ársfjórðungs. „Vegna ófyrirséðra atburða gerir Arion banki hf. ráð fyrir að niðurfæra lán og greiða út ábyrgðir sem mun hafa neikvæð áhrif á rekstrarafkomu bankans á þriðja ársfjórðungi ársins,“ segir í tilkynningu frá bankanum.

Áhrifin munu nema um 1,3 – 1,8 milljörðum króna, að teknu tilliti til skatta, og mun hlutfall eiginfjárþáttar 1 lækka um um það bil 0,2 prósentustig vegna þessa.

Þar segir að fyrirgreiðslurnar tengist félagi sem hefur verið í viðskiptum við bankann og fyrirrennara hans um árabil.

Haraldur Guðni Eiðsson hjá samskiptasviði Arion banka sagðist í samtali við mbl.is ekki geta staðfest hvort um sé að ræða flugfélagið Primera Air, sem hefur óskað eftir greiðslustöðvun. Á vefsíðunni Turisti.is kemur fram að félagið hafi átt í viðskiptum við Arion banka. 

Hlutabréf í Arion banka lækkað um 7,7%

Hlutabréf í Arion banka hafa lækkað um 7,7% í kauphöllinni í Stokkhólmi í morgun en síðustu viðskipti með bréf bankans voru á genginu 6,19 sænskar krónur. Hlutabréfin hafa lækkað um tæp 22% á einum mánuði og rúm 15% síðustu þrjá mánuði.

Ari­on banki var skráður í Nasqad-kaup­hall­irn­ar í Reykja­vík og Stokk­hólmi 15. júní og var sú skrán­ing sú næst­stærsta í Íslands­sög­unni og fyrsta skrán­ing ís­lensks banka í kaup­höll frá hruni.

„Fjárhagsleg markmið bankans til næstu ára, t.a.m. varðandi þróun eiginfjár, haldast óbreytt. Að mati bankans er um einskiptisatburð að ræða sem hefur ekki áhrif á reglulegar tekjur og almennan rekstrarkostnað,“ segir í tilkynningunni.  

Afkoma bankans fyrir þriðja ársfjórðung verður birt 31. október. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK