Vilja semja eins fljótt og auðið er

Þota WOW air í Keflavík.
Þota WOW air í Keflavík. mbl.is/Eggert

„Þetta voru tveir afkastamiklir dagar þar sem rætt var um framtíðarrekstur flugfélagsins. Stjórnendateymi WOW air er sterkt, vörumerkið öflugt og félagið hefur mikil tækifæri,“ er haft eftir Bill Franke, stjórnanda Indigo Partners, í tilkynningu.

WOW air og Indigo Partners hafa fundað síðustu daga um mögulega fjárfestingu Indigo Partners í WOW air í kjölfar þess að hafa undirritað viljayfirlýsingu í síðustu viku. Bill Franke og fleiri frá Indigo Partners hafa varið tveimur dögum hér á landi til þess að kynnast félaginu og fara yfir framtíðartækifæri þess.

Í tilkynningu kemur fram að heimsókn Indigo-manna sé liður í áframhaldandi áreiðanleikakönnun sem mun liggja til grundvallar fjárfestingunni. Vilji er hjá báðum aðilum til að ljúka samningum eins fljótt og auðið er.

Áður en hægt verður að ljúka samningum þurfa niðurstöður varðandi leiðarkerfi WOW air, flugvélagaleigusamninga ásamt samningum við skuldabréfaeigendur félagsins að liggja fyrir.

„Við erum mjög ánægð með heimsókn Indigo Partners og ljóst er að mikið má læra af Bill Franke og hans öfluga teymi um hvernig má byggja upp farsælt lággjaldaflugfélag. Það er leitun að betri og reyndari samstarfsaðila til þess að efla rekstur og tryggja framtíð félagsins,“ er haft eftir Skúla Mogensen, framkvæmdastjóra WOW air.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK