Icelandair kyrrsetur Max-þotur

Boeing 737 max 8 vél Icelandair.
Boeing 737 max 8 vél Icelandair. Árni Sæberg

Flugfélagið Icelandair hefur kyrrsett allar þrjár Boeing 737 MAX 8 vélar fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Tilkynningin kemur í kjölfar þess að bresk yfirvöld bönnuðu allt flug þota af gerðinni 737 MAX 8 í lofthelgi sinni í dag. Kyrrsetning Icelandair er til óákveðins tíma.

Fram kemur í tilkynningu Icelandair að félagið fylgist áfram náið með þróun mála og vinni með flugmálayfirvöldum á Íslandi, í Evrópu og í Bandaríkjunum varðandi næstu skref.

Tvær þotur af gerðinni 737 MAX 8 hafa hrapað með nokkurra mánaða millibili. Vél Lion Air frá Indónesíu fórst í október en þota Ethiopian Airlines fórst á sunnudag. 

„Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir, þá öryggisferla sem félagið fylgir, sem og þjálfun áhafna þess, telur félagið vélarnar öruggar,“ segir í tilkynningunni.

Kemur þar einnig fram að til skamms tíma muni þessi ráðstöðvun hafa óverulegu áhrif á rekstur félagsins þar sem floti þess samastendur í heild sinni af 33 farþegavélum. Því hefur félagið svigrúm til að bregðast við á næstu vikum.

Tilkynning Icelandair:

Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flugvélar sínar úr rekstri um óákveðinn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri.
Félagið fylgist náið með þróun mála og vinnur áfram með flugmálayfirvöldum á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum varðandi næstu skref. Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir, þá öryggisferla sem félagið fylgir, sem og þjálfun áhafna þess, telur félagið vélarnar öruggar.
Til skamms tíma mun þessi ráðstöfun hafa óveruleg áhrif á rekstur félagsins þar sem aðeins er um 3 vélar að ræða af 33 farþegavélum í flota félagsins og því hefur félagið svigrúm til að bregðast við á næstu vikum.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK