Erlend kortavelta dregst saman um tæp 10%

Áberandi mest lækkun er á veltu greiðslukorta frá Norður-Ameríku, en …
Áberandi mest lækkun er á veltu greiðslukorta frá Norður-Ameríku, en bæði bandarísk og kanadísk kortavelta lækkaði um 26% frá september í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kortavelta erlendra ferðamanna (án flugsamgangna) dróst saman um 9,65% á milli ára á breytilegu verðlagi í september og nam 22 milljörðum kr. í mánuðinum.

Fram kemur í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar að töluverður samdráttur var í kortaveltu flokksins ýmis ferðaþjónusta eða 15,7% borið saman við fyrra ár. Í þann flokk falla ýmsar skipulagðar ferðir og starfsemi ferðaskrifstofa.

Kortavelta flokksins nam tæpum 3 milljörðum í september og fór meirihluti hennar fram með greiðslum á netinu. Sé litið á kortaveltu flokksins á netinu, var samdráttur einungis 1,2% og nam 2,2 milljörðum kr. á meðan kortavelta í posum dróst saman um 43% á milli ára og nam rúmum 700 milljónum króna.

Í gistiþjónustu dróst erlend kortavelta saman um 9,6% eða 568 milljónir á milli ára og nam 5,9 milljörðum kr. í september. Þá var jafnframt samdráttur í kortaveltu erlendra ferðamanna í flokki bílaleiga, 16,7% og í veitingaþjónustu var samdráttur upp á 12,5% miðað við sama mánuð í fyrra. Kortavelta í verslun dróst saman um 4,3% samanborið við fyrra ár, þar sem samdráttur í dagvöruverslun og fataverslun var þó nokkur. 

Kortavelta frá N-Ameríku lækkar mest

Áberandi mest lækkun er á veltu greiðslukorta frá Norður-Ameríku. Þannig lækkuðu bæði bandarísk og kanadísk kortavelta um 26% frá september í fyrra. Rannsóknarsetur verslunarinnar bendir á að samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia fækkaði bandarískum ferðamönnum um 43% í september og þeim kanadísku fækkaði um 36%. Því hækkaði kortavelta á hvern ferðamann frá Norður-Ameríku í mánuðinum sem leið.

Kortavelta breskra ferðamanna stóð nánast í stað á milli ára,  jókst um 2% á breytilegu verðlagi og nam heildarvelta þeirra 3 milljörðum kr. Kortavelta franskra ferðalanga jókst þá um 19% á milli ára og hjá þýskum ferðamönnum um 7% á sama tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK