Advania opnar í Danmörku

Advania hefur keypt danska félagið Kompetera og opnar nú starfstöð í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið getur því boðið alhliða þjónustu í upplýsingatækni á öllum Norðurlöndunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kaupin á Kompetera eru liður í að efla starfsemi Advania um öll Norðurlönd. Nú getur fyrirtækið boðið alhliða rekstrarþjónustu í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Íslandi og Finnlandi. Starfsfólk Komepetera, þrjátíu talsins, bætist því við starfslið Advania.  

„Með starfsemi í Danmörku höfum við náð markmiði okkar um að verða sannkallað norrænt fyrirtæki og nú stefnum við á að byggja ofan á þann 15% innri vöxt sem varð árið 2019. Það er frábært skref fyrir Advania að geta nú boðið upp á alhliða þjónustu á sviði upplýsingatækni á öllum Norðurlöndunum. Ekkert annað félag á þessu sviði getur það. Með kaupum á Kompetera eykst geta og þekking Advania á altækri rekstrar- og skýjaþjónustu til muna og við sjáum mörg tækifæri framundan,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, í tilkynningunni.

„Það er hvetjandi innblástur að verða hluti af svo framúrskarandi fyrirtæki sem Advania er. Með okkar nálgun og staðbundnu þekkingu náum við að fylla í lítið en þó mikilvægt skarð á dönskum markaði. Við erum himinlifandi með þetta tækifæri og hlökkum til bjartrar framtíðar saman,“ segir Carstein Weis framkvæmdastjóri Kompetera, í tilkynningunni.

Efnisorð: Advania
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK